Á eftir dimmum skýjum
Tinna er flutt og þarf að fóta sig í nýjum skóla. Bekkurinn hennar er frekar glataður en sem betur fer kynnist hún Karítas og síðan Sól, svo lífið gæti verið verra. Þegar salerni í unglingadeildinni er sprengt í loft upp fer skólastarfið í uppnám. Tinnu grunar að árásin beinist gegn hinsegin nemendum en yfirvöld skólans eru treg að viðurkenna það. Tinna og vinir hennar taka því málin í sínar hendur. Þau vilja vita hver bera ábyrgð og ekki síður ástæðuna fyrir verknaðinum. Fyrr en varir eru þau á flótta undan sprengjuvörgunum og flækt í atburðarás sem leiðir þau í lífsháska í næturfrosti og myrkri við gömlu höfnina.
Deila
Ljóðverk
-
Og við ...
Venjulegt verð Frá 3.000 ISKVenjulegt verðEiningaverð /
Allt er svart í myrkrinu
Tinna er á leiðinni í vetrarfrí með foreldrum sínum þegar þau lenda í bílslysi á dimmum sveitavegi. Í kjölfarið er Tinna veðurteppt á sjúkrahúsi í litlum bæ þar sem hún kynnist Dóru, dóttur yfirlæknisins. Dóra þekkir hvern krók og kima hússins og finnur upp á ýmsu skemmtilegu á meðan þær bíða eftir að óveðrið gangi yfir. Fúllyndur hjúkrunarfræðingur virðist alltaf vera á hælunum á þeim og drungalegir atburðir fara að gerast þegar þær hætta sér inn á deild spítalans sem er lokuð. Áður en þær vita af þurfa þær að berjast fyrir lífi sínu í dimmri vetrarnóttinni.Tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2022 og Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2023.